Vaxa og Blómstra
← Til baka í greinar

25. ágúst 2026 · 12 mín

Tengsl og öryggi: grunnurinn að vellíðan

Við tölum oft um vellíðan eins og hún byggist fyrst og fremst á því að hugsa jákvætt, sofa nóg, hreyfa sig og hugsa vel um sig. Allt þetta skiptir máli. En undir mörgu því sem styður okkur til að líða vel liggur enn dýpri grunnur: tilfinningin fyrir öryggi, tengslum og að við tilheyrum.

Við erum tengslaverur. Frá fyrstu æviárum lærum við um okkur sjálf og heiminn í samskiptum við annað fólk. Í gegnum svipbrigði, rödd, snertingu, viðbrögð og nærveru annarra fær taugakerfið sífellt upplýsingar um hvort við séum örugg, hvort það sé pláss fyrir okkur og hvort við getum leitað til einhvers þegar eitthvað verður erfitt.

Öryggi er því ekki aðeins það að vera laus við beina hættu. Við getum verið á öruggum stað og samt fundið fyrir innri ógn, spennu eða óvissu. Það er ekki nóg að við fullorðna fólkið teljum aðstæður öruggar. Það sem skiptir máli er hvernig barnið upplifir þær. Barn getur verið í aðstæðum sem virðast okkur fyrirsjáanlegar og hættulausar en samt upplifað þær sem óöruggar, yfirþyrmandi eða ófyrirsjáanlegar.

Þess vegna þurfum við stundum að stíga út úr okkar eigin túlkun og reyna að sjá aðstæðurnar frá sjónarhorni barnsins. Ekki aðeins spyrja: „Er eitthvað hér sem barnið ætti að óttast?“ heldur frekar: „Hvernig gæti barnið verið að upplifa þessar aðstæður?“

Barn sem á erfitt með skynúrvinnslu getur til dæmis upplifað hávaða, mannmergð, sterka lýsingu eða mikla hreyfingu í umhverfinu sem yfirþyrmandi, þótt sama áreiti veki litla athygli hjá okkur fullorðna fólkinu. Annað barn getur verið á varðbergi vegna þess að önnur börn tala niður til þess, skilja það út undan eða gera lítið úr því þegar fullorðnir sjá ekki til. Enn annað barn getur orðið óöruggt við ákveðinn tón í rödd starfsmanns, svipbrigði eða pirring sem hinn fullorðni gerir sér jafnvel ekki grein fyrir að hann sýni.

Það sem virðist okkur lítið eða saklaust getur því haft allt aðra merkingu fyrir barnið. Þegar barn verður órólegt, dregur sig í hlé, reiðist eða fer að forðast ákveðnar aðstæður getur hegðunin verið vísbending um að eitthvað í upplifun þess sé erfitt – jafnvel þótt við sjáum ekki strax hvað það er.

Tilfinning fyrir öryggi verður meðal annars til þegar við upplifum fyrirsjáanleika, virðingu, hlýju og þegar einhver reynir að skilja okkur.

Þegar við finnum fyrir nægu öryggi þarf kerfið okkar ekki stöðugt að vera á verði. Þá skapast meira rými fyrir forvitni, leik, nám, sköpun, samkennd og tengsl. Við eigum auðveldara með að hugsa, taka inn upplýsingar, takast á við mótlæti og leita lausna.

Tökum sem dæmi þegar einstaklingar í parsambandi leysa ágreining. Þeir geta gert það í tengslum við hvort annað þegar báðir upplifa að þeir megi segja frá sinni upplifun án þess að þurfa að verja sig, óttast niðurlægingu eða að sambandinu sé ógnað. Þau geta verið ósammála en samt fundið: Við erum enn saman í þessu.

Ef samtalið verður hins vegar fullt af ásökunum, fyrirlitningu, hótunum eða höfnun getur taugakerfið farið í vörn. Þá verður erfiðara að hlusta, sýna samkennd og sjá sjónarhorn hins. Við förum þá frekar að verja okkur, draga okkur í hlé eða loka á samtalið.

Sama á við um svo margt í mannlegum samskiptum: öryggi gerir okkur betur í stakk búin til að vera í tengslum, jafnvel þegar eitthvað er erfitt. Þetta á ekki síst við um börn.

Börn þurfa tengsl áður en þau geta nýtt sér leiðsögn

Þegar barn er yfirbugað af sterkum tilfinningum er það sjaldnast rétti tíminn fyrir langar útskýringar eða rökræður. Þá þarf það oft fyrst og fremst að finna fyrir öryggi og tengingu við hinn fullorðna.

Róleg nærvera, mjúkur tónn, skýr mörk og skilaboðin „ég er hér, við finnum út úr þessu saman“ geta skipt meira máli en fullkomnu orðin eða „réttu uppeldisaðferðirnar“.

Þetta þýðir ekki að börn eigi ekki að fá mörk eða þurfi aldrei að taka ábyrgð. Þvert á móti. Örugg tengsl og skýr mörk geta farið mjög vel saman. Barn getur þurft að heyra:

„Ég sé að þú ert mjög reiður. Það er í lagi að vera reiður, en ég leyfi þér ekki að meiða.“

Þar fær tilfinningin pláss án þess að öll hegðun verði samþykkt.

Hegðun segir okkur oft eitthvað

Þegar við horfum aðeins á hegðun barns getum við auðveldlega fest okkur í spurningunni: Hvernig fæ ég barnið til að hætta þessu?

En stundum hjálpar önnur spurning okkur lengra: „Hvað gæti þetta barn verið að upplifa sem fær það til að bregðast svona við?“ Þessi spurning færir okkur frá því að horfa eingöngu á það sem barnið gerir yfir í að velta fyrir okkur því sem gæti verið að gerast innra með því.

Er það þreytt? Yfirbugað? Óöruggt? Er verkefnið of erfitt? Er of mikið áreiti í umhverfinu? Skilur það hvað er ætlast til af því? Hefur eitthvað gerst fyrr um daginn sem við vitum ekki af? Þarf það meiri fyrirsjáanleika, hvíld, tengingu eða aðstoð við að setja orð á það sem það er að upplifa?

Við þurfum ekki alltaf að vita nákvæmlega hvað liggur að baki hegðuninni. En þegar við nálgumst barnið af forvitni í stað þess að ganga út frá því að við vitum hvað hegðunin þýðir, eigum við meiri möguleika á að mæta því þar sem það er.

Hegðun þarf vissulega stundum að stöðva eða leiðrétta. En skilningur á því sem liggur undir henni gefur okkur meiri möguleika á að bregðast við á þann hátt sem hjálpar barninu og kennir því til lengri tíma.

Við lærum ró í tengslum

Börn fæðast ekki með fullþroskaða hæfni til að róa sig sjálf þegar eitthvað verður erfitt. Sú geta þróast meðal annars í gegnum endurteknar upplifanir af því að annar einstaklingur hjálpi þeim að komast aftur í jafnvægi.

Smám saman verður það sem gerst á milli hins fullorðna og barnsins að einhverju sem barnið getur síðar gert innra með sér.

Barn sem fær aftur og aftur að upplifa:

„Tilfinningar mínar eru ekki of mikið.“ „Það er ekkert að mér þótt mér líði illa.“ „Ég má leita til annarra og tala um það sem ég er að upplifa.“ „Mistök þýða ekki að tengslin rofni.“ „Ég get orðið reiður og samt verið elskaður.“

byggir mikilvægan grunn að sjálfsöryggi, tilfinningastjórn og heilbrigðum tengslum síðar á lífsleiðinni.

Örugg tengsl snúast ekki um fullkomnun

Enginn foreldri, kennari eða fagaðili bregst alltaf fullkomlega við.

Við verðum pirruð. Misskiljum. Verðum stundum of hörð eða of fljót að bregðast við. Það sem skiptir máli er ekki að sambandið sé án allra hnökra, heldur að hægt sé að gera við tengslin.

Fullorðinn getur til dæmis komið aftur og sagt: „Ég talaði of hranalega við þig áðan. Það var ekki í lagi. Ég var pirraður/pirruð, en það var mitt að passa hvernig ég talaði við þig.“

Slík samskipti kenna barninu eitt mjög mikilvægt: að ágreiningur eða mistök þurfa ekki að þýða að tengslin rofni eða að barnið standi eitt. Við getum gert mistök, tekið ábyrgð og fundið aftur leið hvort að öðru.

Tengsl eru ekki aukaatriði

Hvort sem við erum að hugsa um heimilið, leikskólann, skólann eða annað umhverfi barna er auðvelt að beina athyglinni fyrst að frammistöðu og hegðun. Er barnið að læra nóg? Fylgir það fyrirmælum? Getur það setið kyrrt? Er það duglegt að stjórna sér? Getur það tekið þátt í leik og daglegu starfi?

En áður en við spyrjum hvað við viljum fá frá barninu getur verið mikilvægt að spyrja: Hvernig gæti barninu liðið hér? Upplifir það öryggi, jafnvel þótt við teljum aðstæður öruggar? Upplifir það að einhver sjái það og reyni að skilja? Á það öruggan fullorðinn sem það getur leitað til? Hvað gæti hegðun þess verið að segja okkur um upplifun þess?

Öryggi og tengsl leysa ekki allan vanda. En þau skapa jarðveginn sem svo margt annað þarf til að geta vaxið.

Þegar barn þarf ekki að verja allri orku sinni í að vera á varðbergi verður meira rými til að læra, leika, tengjast, prófa sig áfram og þroskast.

Við blómstrum best þar sem við upplifum raunverulegt öryggi – og þar sem við vitum að við tilheyrum.

Viltu fræðast meira? Skoðaðu þjónustuna mína: