Fyrirlestrar
Fræðsla sem eykur skilning
Ég býð upp á fyrirlestra og fræðslu fyrir skóla, leikskóla, foreldrahópa, fagfólk og aðra sem starfa með börnum og fjölskyldum.
Fyrirlestrarnir byggja á fræðilegri þekkingu, reynslu og þeirri nálgun að hegðun eigi sér alltaf samhengi. Áhersla er lögð á að auka skilning, styrkja tengsl og færa þátttakendum verkfæri sem nýtast í daglegu lífi og starfi.
Tengsl og öryggi
Hvernig tengsl, samstilling og upplifun af öryggi hafa áhrif á líðan, hegðun og þroska barna.
Hegðun sem skilaboð
Að horfa út fyrir hegðunina og leita skilnings á þörfum, streitu og því sem viðbrögð barnsins kunna að vera að segja okkur.
Einhverfa og foreldrahlutverkið
Fræðsla og stuðningur fyrir foreldra um þarfir einhverfra barna, tengsl, daglegt líf og það að finna leiðir sem henta barninu og fjölskyldunni.
Einhverfa í skólaumhverfinu
Hvernig skólar og leikskólar geta betur skilið og mætt einhverfum börnum með áherslu á öryggi, tengsl, skynúrvinnslu, fyrirsjáanleika og einstaklingsbundnar þarfir.
Streita og taugakerfið
Hvernig streita og álag geta birst í hegðun.
Hafðu samband
Hægt er að aðlaga fyrirlestra að ólíkum hópum, aðstæðum og áherslum. Sendu fyrirspurn og við finnum saman efni og fyrirkomulag sem hentar þínum hópi.
