Vaxa og Blómstra

Ráðgjöf

Fræðsla og ráðgjöf

Vaxa og blómstra býður upp á fræðslu, ráðgjöf og samráð fyrir skóla, foreldra og fagfólk sem starfar með börnum og fjölskyldum.

Nálgunin byggir á því að horfa á hegðun, líðan og samskipti barna í samhengi. Sérstök áhersla er lögð á tengsl, öryggi, streitu, taugakerfið og áhrif erfiðrar reynslu og áfalla á líðan og hegðun.

Markmiðið er ekki aðeins að bregðast við því sem sést, heldur að skilja betur hvað kann að liggja að baki og skapa aðstæður sem styðja við öryggi, tengsl, líðan og þroska barnsins.

Áfallamiðuð nálgun í skólastarfi

Fræðsla og ráðgjöf fyrir skóla og leikskóla sem vilja efla áfallamiðaða nálgun í starfi sínu.

Fjallað er meðal annars um áhrif streitu og áfalla á taugakerfi, hegðun, nám og samskipti barna og hvernig starfsfólk getur skapað meira öryggi, fyrirsjáanleika og tengsl í daglegu skólastarfi.

Áhersla er lögð á að færa fókusinn frá því að spyrja eingöngu „Hvernig stöðvum við þessa hegðun?" yfir í að spyrja einnig „Hvað gæti verið að gerast hjá barninu – og hvað þarf það frá okkur?"

Þegar áfall verður í nemendahópnum

Fræðsla og stuðningur fyrir skóla þegar erfiðir eða alvarlegir atburðir hafa áhrif á nemendur, starfsfólk eða nærsamfélagið.

Fjallað er um viðbrögð barna við sorg og áföllum, hvernig hægt er að skapa öryggi og fyrirsjáanleika fyrstu dagana og vikurnar og hvernig starfsfólk getur rætt erfiða atburði við börn á aldurssamsvarandi og styðjandi hátt.

Einnig er hægt að vinna með skólastjórnendum og starfsfólki að verklagi og áfallaáætlun sem tekur ekki aðeins til skipulags heldur einnig þess hvernig haldið er utan um börn, hópa og starfsfólk í kjölfar erfiðra atburða.

Skilningur á bak við hegðunina

Ráðgjöf og fræðsla fyrir skóla, leikskóla og fagfólk vegna hegðunar, líðanar og samskipta barna.

Horft er á hegðun sem upplýsingar um stöðu barnsins fremur en einangrað vandamál. Skoðað er hvað kann að hafa áhrif á hegðunina, svo sem streita, tengsl, skynúrvinnsla, taugakerfi, umhverfi, fyrri reynsla og þarfir barnsins.

Markmiðið er að móta leiðir sem styðja bæði við barnið og þann hóp sem það tilheyrir.

Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf

Stuðningur við foreldra sem vilja skilja barnið sitt betur, styrkja tengslin og finna leiðir sem henta þeirra fjölskyldu.

Í ráðgjöfinni er meðal annars hægt að vinna með hegðun, tilfinningar, mörk, samskipti, streitu og tengsl og skoða hvað hegðun barnsins kann að vera að segja okkur.

Áhersla er lögð á að foreldrar fái bæði aukinn skilning og hagnýt verkfæri sem hægt er að nota í daglegu lífi.

Samráð fyrir fagfólk og barnavernd

Samráð og fræðsla fyrir fagfólk innan félagsþjónustu, barnaverndar og annarrar þjónustu við börn og fjölskyldur.

Áhersla er lögð á að skoða stöðu barnsins út frá tengslum, öryggi, reynslu þess og mögulegum áhrifum streitu og áfalla.

Markmiðið er að stuðla að sameiginlegum skilningi meðal þeirra sem koma að barninu og finna leiðir sem taka mið af þörfum þess, tengslum og líðan – án þess að missa sjónar á ábyrgð, vernd og hagsmunum barnsins.

Einstaklingssamtöl

Í ákveðnum tilfellum býð ég einnig upp á einstaklingssamtöl fyrir fólk sem vill efla sjálfsskilning og skoða eigin mynstur, tengsl og líðan.