
Manneskjan á bak við Vaxa og blómstra
Ég heiti Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir. Ég er kennari, foreldrafræðari og uppeldisráðgjafi, en það sem mótar nálgun mína verður ekki eingöngu rakið til menntunar minnar.
Ég á sjálf áfallasögu að baki og hef í gegnum eigin vegferð þurft að læra að skilja betur tengslin á milli reynslu, líkama, hugsana og viðbragða. Sú vinna hefur gefið mér djúpan sjálfsskilning og um leið vakið enn meiri forvitni um það hvernig við mótumst af því sem við upplifum — og hvað getur hjálpað okkur að vaxa þegar lífið reynir á.
Samhliða grunnmenntun minni hef ég sótt mér aukna þekkingu á sviði einhverfu, tengsla, taugakerfisins, áfalla og sómatískrar nálgunar. Ég hef sérstakan áhuga á því að skilja hegðun í samhengi og horfa út fyrir það sem sést á yfirborðinu: Hvað er manneskjan að upplifa? Hvað er kerfið að reyna að segja okkur? Og hvað þarf að vera til staðar svo öryggi, tengsl og þroski fái meira rými?
Í starfi mínu mætast því tvær hliðar sem eru mér jafn mikilvægar: fræðileg þekking og mannleg reynsla.
Vaxa og blómstra varð til úr þeirri sýn að skilningur geti breytt því hvernig við mætum bæði okkur sjálfum og öðrum. Að þegar við hættum aðeins að spyrja „Hvað er að?“ og förum frekar að velta fyrir okkur „Hvað liggur hér að baki?“ opnist möguleiki á annars konar samtali.
Í dag miðla ég þessari nálgun í fræðslu, fyrirlestrum og ráðgjöf fyrir foreldra, skóla og fagfólk sem starfar með börnum og fjölskyldum.
Fyrir mér snýst þetta alltaf um manneskjuna á bak við hegðunina.
